Líf í borgarholtsskóla

Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í vélvirkjun

Byrjar: 24/08/2026

Endar: 16/09/2026

Á námskeiðinu verður farið yfir þá verklegu þætti sem prófað verður úr í sveinsprófinu. Á fyrsta degi verður farið í bilanagreiningu og slitmælingu. Á öðrum verður farið yfir smíðahluti í rennibekk og fræsivél og á þriðja degi verður farið í suðuæfingar.
Heildarverð fyrir námskeiðið er 57.000kr en hægt er að taka einn eða fleiri námsþætti úr námskeiðinu og þá er greitt fyrir hvern námsþátt 19.000kr.
Námskeiðin verða haldin ef það næst næg þátttaka og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst

Mánudagur 14. sept 18:00-22:00 Bilanagreining/mælingar. Umsjón: Jóhann Pálsson
Þriðjudagur 15. sept 18:00-22:00. Rennismíði. Umsjón: Ingvi Pétursson
Miðvikudagur 16. sept 18:00-22:00. Suðuæfingar. Umsjón: Hörður Harðarson

Umsjónaraðili er Ellert Danelíusson og umsóknir berast á tölvupóstfangið ellert.daneliusson@borgo.is