Líf í borgarholtsskóla

Innritun á haustönn 2026

Byrjar: 20/03/2026

Endar: 10/06/2026

Borgarholtsskóli býður upp á fjölbreytt nám, bóknám, iðn- og starfsnám og listnám.

Spurningar og svör um Borgó og námið þar.

Dagskóli

Innritun eldri nemenda á haustönn 2026 fer fram dagana 13. mars – 26. maí
Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 24. apríl – 10. júní.

Innritun fer fram á Ísland.is.

Nám í boði

*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám í íþróttaakademíu, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um í íþróttaakademíu á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 10. júní 2026.

Inntökuskilyrði
Innritunargjöld

Nám með vinnu (dreifnám og kvöldskóli)

Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og kvöldskóla í málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.

Félagsvirkni- og uppeldissvið (dreifnám) – umsóknareyðublað

Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir haustönn 2026.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2026.
Nánari upplýsingar gefur Hermína Huld Hilmarsdóttir, deildarstjóri, hermina.hilmarsdottir@borgo.is

Málm- og véltæknisvið (kvöldskóli) – umsóknareyðublað

Innritun fer fram á rafrænu eyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2026.
Nánari upplýsingar veitir Ellert Danelíusson deildarstjóri, ellert.daneliusson@borgo.is