
Málm og véltæknigreinar í kvöldskóla
Málm- og véltæknibrautir – kvöldskóli
Kvöldskóli í málm- og véltæknigreinum er ætlaður þeim sem eru í fullri vinnu og eiga því erfitt með að stunda hefðbundið framhaldsskólanám í dagskóla. Kennslustundir í kvöldskóla eru mun færri en í dagskóla og gerir það auknar kröfur til vinnuhraða og ástundunar náms. Því er miðað við að þeir sem innritast í námið hafi a.m.k. þriggja ára starfsreynslu í málm- og véltæknigreinum (eða skyldum greinum) eða hafi náð 25 ára aldri. Mælt er með að nemendur kynni sér möguleika á raunfærnimati sem gæti komið til styttingar á námi í skóla.
Kennslan fer fram seinni part dags, á kvöldin og um helgar. Kennt er eftir sömu námskrá og í dagskóla. Meginreglan er sú að hver áfangi er kenndur einu sinni í viku í fjóra tíma í senn, hálfa önn. Í einhverjum tilvikum er kennt á laugardögum og eru tímarnir þá færri og lengri.
Stundatafla í kvöldskóla á málm- og véltæknibrautum vorönn 2026
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um kvöldskóla í Borgarholtsskóla veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.
Uppfært: 25/03/2026
