
Félagsvirkni- og uppeldisbrautir
Félagsvirkni- og uppeldisbrautir
Nám í félagsvirkni- og uppeldisgreinum skiptist á þrjár námsbrautir: Nám fyrir félagsliða, leikskólaliða, og stuðningsfulltrúa. Nám fyrir félagsliða lýkur á þriðja hæfniþrepi en nám fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa lýkur á öðru hæfniþrepi.
Að loknu starfsnámi er mögulegt að bæta við viðbótarnámi til stúdentsprófs. Stúdentspróf er að lágmarki 200 einingar og lýkur á þriðja hæfniþrepi.
Dreifnám
Dreifnám á félagsvirkni- og uppeldisbrautum er nám sem hægt er að stunda samhliða vinnu. Það fer að mestu fram í gegnum tölvu en á hverri önn eru kenndar 3 staðlotur í skólanum um helgi. Námið byggir á þrenns konar vinnuaðferðum: verkefnavinnu í gegnum netið, staðbundnum lotum og netumræðum (ein klukkustund á viku í hverjum áfanga eftir klukkan 16:35).
Dreifnámið miðast við að einstaklingur hafi starfsreynslu á viðeigandi sviði og hafi við námslok a.m.k. 3ja ára starfsreynslu. Eins eru framhaldskólaeiningar metnar ef áfangar eru þeir sömu eða sambærilegir við þá sem kenndir eru á brautunum.
Þetta fyrirkomulag gerir nemendum kleift að uppfylla fjölbreytt markmið námsins auk þess sem þeir hljóta góða hæfni í upplýsingatækni. Leitast er við að verkefni tengist sem mest starfsumhverfi nemenda og samtímanum.
Námið er styrkhæft hjá mörgum stéttarfélögum. Nemendur sem greiða sjálfir fá sendan greiðsluseðil í heimabanka fyrir innritunargjöldum, sem eru óafturkræf. Einingagjöld er innheimt eftir að nám er hafið.
Staðlotur vorönn 2027
8. og 9. janúar
5. og 6. mars
7. og 8. maí
Stundatafla fyrir umræðutíma og staðlotur vor 2027
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um dreifnám í Borgarholtsskóla veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms og Hermína Huld Hilmarsdóttir, deildarstjóri félagsvirkni- og uppeldisbrauta.
Uppfært: 21/10/2026
