Líf í borgarholtsskóla

29/04/2026 | Ritstjórn

Umhverfisfréttafólk verðlaunað

Verðlaunahafar ásamt Flosa, kennara sínum

Verðlaunahafar ásamt Flosa, kennara sínum

Nemendur í áfanganum Fjölmiðlafræði (FJÖ2A05) við skólann hafa náð eftirtektarverðum árangri með þátttöku sinni í keppninni Umhverfisfréttafólk sem haldin er á vegum Landverndar.

Keppnin miðar að því að efla umhverfisvitund ungs fólks og hvetja til vandaðrar miðlunar um málefni náttúru og sjálfbærni.  Alls hlutu fimm verkefni frá nemendum áfangans tilnefningu í keppninni, sem telst glæsilegur árangur.

15 framhaldsskólar tóku þátt í þessu verkefni og voru alls 14 verkefni tilnefnd til verðlauna. Verkefnin frá Borgó sem voru tilnefnd eru:

Auga Óðins – Feydís og Grétar

Útrýming íslenskra fugla – Jóhanna og Kári

Plasttappar – Hilmar, Særún og Karen

Hvalveiðar – Úlfur

Plastmengun – Indriði

Í verkefnum sínum fjölluðu nemendur um fjölbreytt og brýn umhverfismál, allt frá plastmengun til stöðu dýralífs á Íslandi. Verkefnin bera vott um gagnrýna hugsun, skapandi nálgun og faglega miðlun sem einkennir vandaða fjölmiðlavinnu.

Kennarar áfangans, Flosi Jón og Helga Kristrún hafa staðið sig frábærlega við að fylgja nemendum í þessari vinnu, og eru afar stolt af árangri nemenda og framlagi þeirra til umræðu um umhverfismál.

Verðlaunaathöfn keppninnar fór svo fram í gær í húsakynnum Landverndar, þar sem tilkynnt var um úrslit. Tvö þessara fimm verkefna enduðu á verðlaunapalli. Verðlaunin sem þau fengu voru fyrir framúrskarandi skapandi verkefni.

Jóhanna Eldey og Kári Björn fengu verðlaun fyrir Lundasögu og Úlfur Kjalar fékk verðlaun fyrir verkefni um hvalveiðar.

Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum frábæru nemendum okkar og verkefnum þeirra.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á heimasíðu verkefnisins.