13/10/2026 | Ritstjórn
Stórt hlutverk á RIFF

Orri með verðlaunagripinn fyrir myndina sína
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Reykjavík International Film Festival eða RIFF er nýlokið. Segja má að Borgarholtsskóli hafi leikið býsna stórt hlutverk þar. Nemendur á kvikmyndabraut sáu um upptökur og streymi frá hátíðinni undir styrkri stjórn Þorgeirs Guðmundssonar og Þiðriks C. Emilssonar kennara. Einnig mátti sjá mörg gömul Borgóandlit á viðburðum hátíðarinnar sem þátttakendur í ýmsum keppnisflokkum sem leikarar og leikstjórar.
Mynd Orra Guðmundssonar, Til hamingju fáviti, var verðlaunuð sem besta myndin í nemendasamkeppni hátíðarinnar en Orri útskrifaðist frá skólanum 2024. Samkvæmt umsögn dómnefndar sameinar kvikmyndin húmor og dimman undirtón. Myndin fjallar um margar hliðar lífsins, svo sem vináttu, afbrýðisemi og karlmennsku. Leikurinn er sterkur, frásögnin vel útfærð og endirinn óljós svo áhorfandinn situr eftir með stórar spurningar.
Þátttakan í hátíðinni er enn ein rósin í hnappagat kennaranna á kvikmyndabrautinni fyrir að útvega nemendum raunveruleg verkefni sem veita þeim byr undir báða vængi til stórkostlegra afreka eins og dæmin sýna.

Nemendur á kvikmyndabraut ásamt Elísabetu Rónaldsdóttur klippara, leikstjóranum David Leitch og framleiðandanum Kelly McCormick

Viðburður tekinn upp

Nemendur streyma frá RIFF

