Líf í borgarholtsskóla

26/02/2026 | Ritstjórn

Söngur í salnum

Gestir frá Kaliforníu og kórfélagar í Borgó stilla sér upp

Gestir frá Kaliforníu og kórfélagar í Borgó stilla sér upp

Miðvikudaginn 18. febrúar komu góðir gestir í skólann.  Þar var á ferðinni hópur frá Pinewood Performing Arts skólanum í Kaliforníu. Gestirnir tóku lagið og dönsuðu í sal skólans í hádegishléinu. Áður hafði hópurinn hitt nemendur úr kór skólans og tekið lagið með þeim. Eftir tónleikana áttu nemendur Borgó gott spjall við meðlimi kórsins.

Hádegisheimsóknin var kærkomin en matur bragðast aldrei eins vel og þegar hans er notið við fagran undirleik.