Líf í borgarholtsskóla

05/02/2026 | Ritstjórn

Skemmtilegir skóhlífadagar

Áhugasamir nemendur skoða svo kallaðan "drift" bíl

Áhugasamir nemendur skoða svo kallaðan "drift" bíl

Sú hefð hefur skapast í skólanum að fella niður kennslu í tvo daga í febrúar og bjóða nemendum upp á ýmiss konar viðburði og námskeið í staðinn fyrir hefðbundið nám. Heiti þessara uppbrotsdaga, skóhlífadagar, kemur frá því að í byrjun skólahalds árið 1996 þurftu nemendur og starfsfólk að setja bláar skóhlífar utan um skóna áður en gengið var inn ganga skólans og skólastofur. Einnig má segja að orðaleikurinn snúist um að hlífa nemendum við skólanum eða skólanum við skóna þessa daga.

Þetta árið fengu nemendur að prófa fjölbreytt viðfangsefni, bæði innan skóla og utan. Meðal þess sem nemendum stóð til boða var að fara í jeppaferð, læra japönsku, prjóna, búa til brauðtertur, heimsækja söfn, kynnast nýjum íþróttagreinum eða skemmta sér í þeim greinum sem í uppáhaldi eru. Svona má lengi telja. Skóhlífadagarnir eru kærkomin hvíld frá hefðbundnu námi og verða til þess að nemendur snúa aftur endurnærðir að skólabókunum eftir helgi.

small_image
small_image
small_image
small_image
small_image
small_image
small_image
small_image