Líf í borgarholtsskóla

27/08/2026 | Ritstjórn

Sjóvá gefur rafmagnsbíl

Nemendur og starfsfólk á bíltæknibrautum taka við glæsilegri gjöf frá Sjóvá

Nemendur og starfsfólk á bíltæknibrautum taka við glæsilegri gjöf frá Sjóvá

Í gær fengu starfsfólk og nemendur bíltæknibrauta góða heimsókn en þar var á ferðinni Sigríður Birna Róbertsdóttir, verkefnastjóri ökutækjatjóna hjá Sjóvá, með Hyundai IONIQ 5 rafmagnsbíl í farteskinu. Bíllinn er reyndar ekki alveg í lagi og hentar því vel í kennslu í deildinni. Með þessari góðu gjöf styður tryggingarfélagið við verklega kennslu og eflir menntun framtíðar fagfólks í bílgreinum.

Rafmagnsbíllinn lenti í óhappi þar sem rafhlaðan varð fyrir skemmdum. Kostnaður við viðgerð er umtalsverður og bíllinn fer því ekki aftur í umferð en í staðinn nýtist hann nú sem raunhæft kennslutæki. Bíllinn er ökuhæfur og hjólabúnaður í lagi, sem gefur nemendum fjölbreytt tækifæri til verklegrar þjálfunar í bifvélavirkjun, bílasmíði og bílamálun.

Stuðningur sem þessi er mikilvægur þáttur í að efla starfsmenntun og er glæsilegur vitnisburður um hvað samstarf atvinnulífs og menntastofnana gefur nemendum góð tækifæri til að spreyta sig á raunverulegum viðfangsefnum og öðlast þannig hæfni sem nýtist þeim í atvinnulífinu.