18/11/2026 | Ritstjórn
Samningur um streymi

Ásta Laufey og Einar undirrita samkomulagið, Þorgeir fylgist spenntur með
Um langt árabil hafa nemendur á kvikmyndakjörsviði listnámsbrautar Borgarholtsskóla streymt beint frá heimaleikjum Fjölnis (áður Bjarnarins) í íshokkí. Nemendur hafa þannig kynnst þeirri vinnu sem fylgir slíkri útsendingu en hún er bæði margbrotin og á köflum mjög flókin. Þannig hafa nemendur öðlast reynslu sem nýtist þeim bæði í námi og í atvinnulífinu í framtíðinni. Á móti getur áhugafólk um íshokkí um allt land horft á leikina í góðum gæðum og fær íþróttin þannig mikla og góða kynningu.
Í dag var svo loks undirritað samkomulag um starfssemina. Á myndinni má sjá Ástu Laufey, skólameistara og Einar Svein Guðnason, stjórnarmann í íshokkídeild Fjölnis undirrita samninginn. Þorgeir Guðmundsson, sem kennir áfangann STU3B05 þar sem streymiskennslan fer fram nú á haustönn, fylgist spenntur með.

