Líf í borgarholtsskóla

09/09/2026 | Ritstjórn

Nýnemaferð íþróttaakademíu

Ánægðir nýnemar í haustsólinni í Hveragerði

Ánægðir nýnemar í haustsólinni í Hveragerði

Í dag, þriðjudag, skelltu nýnemar í íþróttaakademíunni sér í hópeflisferð útfyrir bæjarmörkin. Ferðin hófst með því að hópurinn fékk leiðsögn um hella í námunda við Þorlákshöfn og gæddu þau sér á kakó og kleinum. Síðan lá leiðin í Hveragerði þar sem hópurinn hristi sig saman í leikjum og baðaði sig í sólinni.

Dagurinn var frábær og skemmtu nemendur ÍAK sér konunglega og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.