20/08/2026 | Ritstjórn
Notalegur nýnemadagur

Stoltir strákar stilla sér upp
Þriðjudaginn 18. ágúst var fyrsti dagur nýnemanna okkar en hefð er fyrir því að leyfa þeim að kynnast skólanum degi áður en eldri nemendur fylla gangana. Góð mæting var á fund í matsalnum um morguninn en þar fengu nemendur kynningu á skólahúsnæðinu, stjórnendum og þeirri þjónustu sem boðið er upp á í skólanum. Nemendafélagið afhenti öllum nýnemnum glæsilega hettupeysu hannaða af Jökli Ísfjörð Matthíassyni, nemanda á listnámsbraut.
Umsjónarkennarar tóku þá við sínum hópum og að loknum kynningum hjá þeim fengu nemendur pylsur áður en haldið var í Skemmtigarðinn í Gufunesi. Þar var farið í skemmtilega hópeflisleiki. Veðrið lék við hvern sinn fingur og starfsfólk og nemendur sneru til baka með sól í sinni og roða á kinnum. Eftir þennan skemmtilega dag eru nýnemar án nokkurs vafa mun öruggari að hefja nám sitt við skólann.
Seinna sama dag var kynning fyrir foreldra/forráðafólk nýnema þar sem þeim var boðið að kynnast starfsemi skólans og þjónustu hans. Mæting fór fram úr öllum vonum og er ljóst að forráðafólk nýnema hyggst taka virkan þátt í námi barna sinna.

Fullur salur af áhugasömum nýnemum

Boginn spenntur hátt

Nemendur njóta í sumarblíðunni

