09/05/2025 | Ritstjórn
Lokasýning í grafískri hönnun

Nemendur ásamt kennurum í grafískri hönnun
Fimmtudaginn 8. maí var opnun sýningar á lokaverkefnum útskriftarnema í grafískri hönnun á Borgarbókasafni menningarhúsi í Spönginni. Þar eru sýnd fjölbreytt og glæsileg verkefni nemenda sem þau hafa unnið í námi sínu í Borgarholtsskóla. Einnig eru til sýnis portfolio möppur nemenda þar sem getur að líta sýnishorn af verkum þeirra.
Verkefnin hafa nemendur unnið undir styrkri stjórn kennara í grafískri hönnun, Kristínar Maríu Ingimarsdóttur, Kristínar Þóru Guðbjartsdóttur og Ragnhildar Ragnarsdóttur. Þær eiga mikið lof skilið fyrir vinnu sína með nemendum.
Ársæll Guðmundsson skólameistari hélt stutta tölu ásamt Guðnýju Maríu Jónsdóttur sviðsstjóra og Kristínu Maríu Ingimarsdóttur fagstjóra. Guðný María færði svo nemendum rósir og kennurum þeirra blómvönd með hamingjuóskum.
Nemendum og kennurum er óskað innilega til hamingju með glæsilega sýningu. Sýningin stendur til 20. maí og eru öll hvött til þess að leggja leið sína á bókasafnið í Spönginni og virða fyrir sér afraksturinn af vinnu vetrarins.
Myndagallerí

Guðný María færir nemendum rósir

Ársæll Guðmundsson hélt stutta tölu

Ármann Arnarson með verkum sínum

Dís Bjarnadóttir með verkum sínum

Michail Voulgarakis með verkum sínum

Dagmar Njarðardóttir með verkum sínum

Birna Margrét Guðjónsdóttir með verkum sínum

Daniela Galaszewska með verkum sínum

Bartosz Borecki með verkum sínum

Rebecca Halldórsdóttir með verkum sínum

Guðbjörg Anna Haraldsdóttir með verkum sínum

Guðrún Björg Ásgeirsdóttir með verkum sínum

Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir með verkum sínum

Aron Smári Kjartansson með verkum sínum

Arnar Axel Jóhannsson með verkum sínum

Perla Sól Guðjónsdóttir með verkum sínum

Elísa Björt Benediktsdóttir með verkum sínum

Aðalheiður Lára Jósefsdóttir með verkum sínum

Pétur Baldvin Einarson með verkum sínum