Líf í borgarholtsskóla

14/10/2025 | Ritstjórn

Heimsókn menntamálaráðherra

Skarphéðinn, deildarstjóri pípulagna, Ársæll, skólameistari og Guðmundur Ingi, menntamálaráðherra

Skarphéðinn, deildarstjóri pípulagna, Ársæll, skólameistari og Guðmundur Ingi, menntamálaráðherra

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, heimsótti Borgarholtsskóla í vikunni ásamt fylgdarfólki úr ráðuneytinu. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna hugmyndir ráðuneytisins um nýjungar á framhaldsskólastiginu fyrir starfsfólki.

Ráðherrann fékk leiðsögn um skólann eftir fundinn og hitti nemendur og starfsfólk. Ráðherra og ráðuneytisfólki er þakkað kærlega fyrir innlitið.