Líf í borgarholtsskóla

04/02/2026 | Ritstjórn

Heimsókn á RÚV

Nemendur í fjölmiðlafræði kynna sér starfsemi RÚV

Nemendur í fjölmiðlafræði kynna sér starfsemi RÚV

Nemendur í fjölmiðlafræðiáfanga á listnámsbraut fóru á dögunum í vettvangsferð í Útvarpshúsið. Þar tóku þær Anna Marsibil, ritstjóri hlaðvarpa á RÚV, og  Sigrún Hermannsdóttir viðburðarstjóri á móti hópnum. Nemendur fengu frábæra leiðsögn um bygginguna og Anna Marsibil var með fyrirlestur um hlaðvarpsgerð. Rúsínan í pylsuendanum var að nemendur fengu að vera hluti af upptökum á nýju útvarpsleikriti þar sem valinkunnir leikarar fara með aðalhlutverkin.

small_image