Líf í borgarholtsskóla

13/10/2026 | Ritstjórn

HD gefur leiser

Ellert og Þorleifur við vélina góðu

Ellert og Þorleifur við vélina góðu

Nýlega fékk skólinn höfðinglega gjöf frá fyrirtækinu HD iðn- og tækniþjónustu. Um er að ræða laser sem notaður verður við kennslu í stálsmíði, blikksmíði og CNC. Laserinn er frábær viðbót við tækjakost skólans og mun koma sér einstaklega vel í öllum þessum greinum.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Ellert Danelíusson, deildarstjóra málm- og véltæknibrauta, stilla sér upp við tækið ásamt Þorleifi Halldórssyni, fyrrverandi nemanda skólans og ungum syni hans á afmælishátíð skólans. Þorleifur var einmitt einn af þeim sem átti frumkvæði að gjöfinni.

Fyrirtækinu eru færðar kærar þakkir fyrir gjöfina sem gagnast mun nemendum og starfsfólki við nám og störf.