08/10/2026 | Ritstjórn
Hamagangur í heilsuviku

Mikill hamagangur var í róðrarkeppninni á miðvikudeginum
Í yfirstandandi viku hefur sannkölluð heilsuefling átt sér stað í skólanum. Heilsuvikan er haldin í tengslum við evrópsku íþróttavikuna (European Week of Sport) sem er árlegt átak sem fer fram í yfir 40 Evrópulöndum undir kjörorðinu #BeActive. Átakið er styrkt af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins.
Margt hefur verið gert til að efla andlega-, líkamlega- og félagslega heilsu nemenda í vikunni. Á hverjum morgni var boðið upp á heilsusamlegt snarl; ávexti, grænmeti og lýsisperlur. Í hádeginu var boðið upp á ýmsar líkamlegar áskoranir fyrir þau sem vildu reyna aukalega á sig og sanna kraft sinn og þor.
Á mánudaginn var haldið stigahlaup. Þar kepptust nemendur við að hlaupa frá 1. hæð upp á 3. hæð í bóknámshluta hússins á sem skemmstum tíma. Sigurvegarinn, Ewald Mateo, náði sögulegum árangri en hann stökk upp hæðirnar þrjár á einungis 6,75 sekúndum. Hröðust stúlkna var Joyceline Banaya á tímanum 8,18 sekúndum sem er virkilega góður tími.
Sippkeppni var á dagskrá á þriðjudaginn og var mikið kapp hjá þátttakendum að ná sem flestum hoppum á einni mínútu. Sigurvegarinn, Hilmar, náði að sippa 195 sinnum og Sigyn var með bestan árangur stúlkna eða 160 skipti. Miðvikudagsþrautin fólst í róðrarkeppni þar sem nemendur kepptu um hver væri fljótastur að róa 250 metra. Þar stóð Grímur uppi sem sigurvegari en hann reri vegalengdina á 42 sekúndum. Sigurvegari í kvennaflokki var Karen á 56 sekúndum. Þetta er glæsilegur árangur hjá þeim öllum.
Verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin í kvenna- og karlaflokki alla dagana. Velunnarar skólans gáfu verðlaunin en það voru fyrirtækin Sportvörur, Margt smátt, Fjallakofinn, Lýsi, Hagkaup, GG sport, Klifurhúsið, Reykjabúið, Hreysti, Craft-verslun og Skopp. Þessum aðilum eru færðar innilegar þakkir fyrir stuðninginn.
Dagskráin náði svo hápunkti í dag, fimmtudag, en þá var nemendum gefinn kostur á að skrá sig í margvíslega heilsutengda atburði og kennsla felld niður í þriðju og fjórðu kennslustund. Nemendur gátu valið um að fara í gönguferð um nágrennið, skák, hláturjóga, keilu, fimleika, badminton, ræktina, handbolta, sirkus, hot fit, jóga og slökun, skauta, pílu, zumba, ólympískar lyftingar eða spila fótbolta. Auk þess var nemendum boðið upp á að horfa á bíómyndina True Spirit sem fjallar um áströlsku siglingakonuna Jessicu Watson sem reyndi, fyrst allra, að sigla ein og án aðstoðar í kringum höttinn aðeins 16 ára gömul árið 2009. Myndin er gott dæmi um það hvernig líkamleg hreysti og andlegt heilbrigði geta sigrað náttúruöflin. Í lokin var svo slegið upp diskóteki í matsalnum og lék plötusnúður undir dúndrandi dansi nemenda sem greinilega áttu næga orku inni.
Heilsuteymi skólans sá um framkvæmd þessarar viðburðaríku viku og á skilið hrós fyrir. Á morgun lýkur dagskránni með því að tekið verður á móti nemendum með heilsusamlegu snarli eins og aðra daga vikunnar.

Dúndrandi tónlist og hollar veitingar við lok heilsudagskrár

Hollur morgunverður er mikilvægasta máltíð dagsins

Girnilegt heilsusnarl

Sippað eins og lífið liggi við

Gönguferð í hávaðaroki er hressandi

Lýsisperlur eru allra meina bót

Flosi Jón og Magnea voru meðal þeirra sem báru hitann og þungann af dagskránni

Sannkallaðar hetjur eftir langan göngutúr

Halla Karen hress í heilsuviku

Heilsunammi, já takk!

