31/08/2026 | Ritstjórn
Góa gefur græju

Helgi í Góu og nafni hans og barnabarn afhenda kennurum skólans græju að gjöf
Enn berast skólanum góðar gjafir. Að þessu sinni er um að ræða gjöfult samstarf málm- og véltæknibrauta við sælgætisgerðina Góu.
Upptök samstarfsins má rekja til þess þegar tveir kennarar við málm- og véltæknibraut skólans, Jóhann Pálsson og Ingvi Pétursson, fengu bilað kælikerfi að gjöf frá Sjóvá fyrir nokkru síðan en félagið hefur verið mjög gjafmilt og gefið skólanum tæki sem þarfnast viðgerðar. Jóhann og Ingvi löguðu kælikerfið ásamt nemendum og fóru með það til Góu þar sem slíkt tæki vantaði fyrir framleiðsluna.
Fimmtudaginn síðastliðinn launaði Góa svo greiðasemina og færði skólanum SKF laser afréttingartæki fyrir öxla sem kostar um 800 þúsund krónur. Með tækinu er hægt að sjá með mikilli nákvæmni hvort öxlar séu réttir eða ekki þegar þeir hafa verið settir í vélar. Ef þörf er á eru öxlarnir réttir af og er sú kunnátta mikilvæg í vélauppsetningu, nákvæmnisvinnu og hátækniiðnaði.
Þetta framtak er gott dæmi um gagnvirkt samstarf sem skólinn á við fjölda fyrirtækja. Slík samvinna færir nemendum tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum og tengir þá við atvinnulífið.
Sælgætisgerðinni Góu eru færðar kærar þakkir fyrir framtakið en hér fylgja myndir frá afhendingu afréttingartækisins. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Helgi Vilhjálmsson, og barnabarn hans og nafni, Helgi Már Gíslason, sem rekur fyrirtækið í dag afhentu gjöfina. Kennararnir Ingvi Pétursson og Jóhann Pálsson tóku á móti gjöfinni ásamt Ellert Danelíussyni, deildarstjóra málm- og véltæknibrauta, og Ingibjörgu Guðmundsdóttur, sviðstjóra iðn- og starfsnáms skólans.

Jóhann kennari virðir fyrir sér nýju græjuna

Þetta er tækið, SKF leiser afréttingatæki fyrir öxla

Við afhendingu tækisins umvafðir nammikössum

