22/08/2026 | Ritstjórn
Glæsilegur árangur á heimsmeistaramóti

Ragnar Ingi er sannkallaður kraftakarl
Eldsnemma föstudagsmorguninn 21. ágúst hóf Borghyltingurinn Ragnar Ingi Ragnarsson keppni á heimsmeistaramóti unglinga í kraftlyftingum sem haldið var í Sun City í Suður-Afríku. Ragnar Ingi er á þriðja ári í skólanum og stundar nám í bifvélavirkjun og tekur einnig viðbótarnám til stúdentsprófs. Á mótinu gerði hann sér lítið fyrir og hafnaði í fimmta sæti í sínum flokki sem er mínus 66 kílóa drengjaflokkur (sub-junior). Hér að neðan má sjá árangur Ragnars Inga í bekkpressu en þar hlaut hann gullverðlaun, hnébeygju og réttstöðulyftu. Hægt er að lesa nánari lýsingu á frammistöðu Ragnars Inga á heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands.
Við getum svo sannarlega verið stolt af Ragnari Inga og er honum óskað hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Keppnin var hörð í flokki Ragnars Inga

