Líf í borgarholtsskóla

16/11/2026 | Ritstjórn

Dagur íslenskrar tungu

Degi íslenskrar tungu fagnað með fyrirlestri Vilborgar Davíðsdóttur

Degi íslenskrar tungu fagnað með fyrirlestri Vilborgar Davíðsdóttur

Þann 16. nóvember ár hvert er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds. Hefð er fyrir því að skólinn standi fyrir sérstakri dagskrá í tilefni dagsins í samstarfi við Borgarbókasafnið í Spöng. Að þessu sinni var tekið á móti nemendum og starfsfólki í fallegum sal safnsins en einnig var gestum og gangandi velkomið að njóta dagskrárinnar.

Gestur okkar í ár var Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur. Hún sagði frá mótunarárum sínum á Þingeyri við Dýrafjörð þar sem hún er borin og barnfædd, skólagöngu, fjölskyldu og frystihúsvinnu og hvernig hún smám saman beindi lífi sínu inn á þá braut að hún varð rithöfundur. Hún fjallaði um verk sín og rætur þeirra í sögum Tolkiens og um áhuga sinn á öllu því sem snertir heiðni, víkingatímann og landnámsfólk á Íslandi, ekki síst líf ánauðugs fólks og kvenna.

Hún vinnur nú bækur sínar á pappír áður en hún setur þær í stafrænt form og segir að þannig losni hún við áreiti netheima og geti einbeitt sér að verkinu. Nemendur hlýddu á erindið af athygli og virðingu við fyrirlesarann. Vilborg lagði áherslu á að mikilvægt væri fyrir þau að lesa sem mest á íslensku eða móðurmáli sínu væri það annað en íslenska. Einnig ættu þau að æfa sig í skrifum, ekki síst að handskrifa, því slík færni gæfi meiri möguleika á að velja að starfa við það sem þau hefðu áhuga á.

Í verkum sínum hefur Vilborg unnið mikið úr íslenskum sagnaarfi og hún er hafsjór þekkingar á fornum lífsháttum og menningu. Hún sagði frá því að blátannarmerkið (sem allir þekkja sem bluetooth) væri búið til úr norrænum rúnum, h og b, sem lagðar eru saman, og að nafnið blátönn kæmi frá norskum fornkonungi, Haraldi blátönn. Á svo óvæntan hátt geti forn fræði og nýsköpun í tækni mæst á okkar dögum.

Fræðast má um verk Vilborgar hér en fyrstu bækur hennar, Við Urðarbrunn og Nornadómur sem voru sameinaðar í Korku sögu, njóta mikilla vinsælda hjá ungu fólki. Nýjasta verk hennar, Vetrarbókin – í gegnum myrkrið með goðum og vættum, er hennar tólfta bók en í henni kannar Vilborg íslenskan sagnaheim sem hefur hjálpað fólki í gegnum dimma vetur frá ómunatíð.

Við þökkum Vilborgu kærlega fyrir fróðlegan og áhugaverðan fyrirlestur sem mun koma áheyrendum að góðum notum við eflingu tungunnar.