23/05/2026 | Ritstjórn
Brautskráning vor 2026

Útskriftarhópur Borgarholtsskóla vorið 2026
Brautskráning frá Borgarholtsskóla fór fram í Háskólabíói laugardaginn 23. maí. Athöfninni var auk þess streymt á Facebook síðu skólans af nemendum í kvikmyndagerð undir stjórn Þorgeirs Guðmundssonar kennara.
Fyrir athöfnina og við upphaf hennar lék Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tónlist undir stjórn Daníels Friðjónssonar.
Dagskráin hófst með ávarpi Ástu Laufeyjar Aðalsteinsdóttur, skólameistara, sem bauð gesti og útskriftarnemendur velkomna en hún gaf svo kynni athafnarinnar orðið en um þær sá Flosi Jón Ófeigsson, kennari við skólann.
Fyrstur á dagskrá var annáll skólaársins. Anton Már Gylfason, áfangastjóri, fór yfir starfsemina á þessu 29. starfsári skólans. Á vorönn stunduðu alls 1270 nemendur nám við skólann, 261 í dreif- og kvöldnámi, en 1002 í dagskóla. Nemendur skiptust á fjögur svið og voru 757 í iðn- og starfsnámi, 277 stunduðu bóknám til stúdentsprófs, 122 voru á listnámsbraut og 107 í undirbúnings- og sérnámi. Anton fór bæði yfir hefðbundið skólastarf og viðburði í félagslífi nemenda sem var blómlegt að vanda og nemendaráð stóð sig með mikilli prýði.
Kór skólans sá um tónlistaratriði á milli dagskrárliða. Þau fluttu lögin From the Start eftir Laufeyju Lin Jónsdóttur og Vikivaka eftir Valgeir Guðjónsson og Jóhannes frá Kötlum undir stjórn Guðbjargar Hilmarsdóttur, söngkennara skólans.
Ásta Laufey og Anton Már sáu um brautskráningu nemenda ásamt sviðsstjórum en tæplega 150 nemendur voru brautskráðir af flestum námsbrautum skólans og sumir útskrifuðust af fleiri en einni braut. Öllum útskriftarnemum var afhent birkiplanta til gróðursetningar en það er hefð sem var innleidd á fyrstu árum skólans. Fjölmörg verðlaun og viðurkenningar voru veitt fyrir frábæran námsárangur og skólasókn. Mörg verðlaunanna voru gjafir frá velunnurum skólans, fyrirtækjum og félagasamtökum.
Guðlaug Gyða flutti kveðjuávarp útskriftarnema en hún brautskráðist af leiklistarkjörsviði listnámsbrautar. Ávarp 10 ára útskriftarnema flutti Þórhildur Vala Kjartansdóttir og Guðrún Vala Bílddal Jónsdóttir flutti ávarp 25 ára útskriftarnema.
Ásta Laufey, skólameistari, flutti kveðjuávarp til úrskriftarnemenda. Hún lagði áherslu á þær ólíku leiðir sem farnar hafa verið í átt að þessum áfanga. Mismunandi hindranir hafa mætt nemendum og miklu máli skiptir að hafa þrautseigju og seiglu að leiðarljósi. Áfanginn sem nemendur ljúka í dag er ekki einungis á pappír heldur vitnisburður um þann lærdóm og þroska sem þeir hafa tekið út í náminu við skólann og mun fylgja þeim út í lífið.
Í lok athafnarinnar var Guðrún Sigurðardóttir, kennari við sérnámsbraut skólans, kvödd. Guðrún hóf störf við skólann árið 1999 og lagði grunninn að starfsemi brautarinnar sem kennari og fagstjóri. Öðru starfsfólki skólans var þakkað fyrir vel unnin störf og gott samstarf á skólaárinu. Velunnurum skólans var þakkað fyrir þeirra framlag til skólastarfsins. Einnig var öllum þeim, sem með einum eða öðrum hætti, komu að framkvæmd og skipulagningu brautskráningarinnar færðar sérstakar þakkir.
Að lokum var nemendum óskað velfarnaðar og góðs gengis í að ná sínum markmiðum, auk þess sem þeim var þakkað fyrir að lífga upp á skólalífið á námsárum sínum.
Fleiri myndir frá athöfninni eru á facebook síðu skólans.

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir skólameistari

Anton Már Gylfason flytur annál Borgarholtsskóla

Flosi Jón Ófeigsson var kynnir á hátíðinni

Guðlaug Gyða Hannesdóttir flutti ávarp útskriftarnema

Þórhildur Vala Kjartansdóttir flutti ávarp 10 ára útskriftarnema

Guðrún Vala Bílddal Jónsdóttir flutti ávarp 25 ára útskriftarnema

Kór Borgarholtsskóla

Guðrún Sigurðardóttir kennari á sérnámsbraut var kvödd

Fjölbreytni námsframboði endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi

Glæsilegur nemendahópur

Tvær stúdínur

Útskriftarnemar af félagsvirkni- og uppeldisbraut

Kampakátir útskriftarnemar

Það var bjart yfir þessum stúlkum

Útskriftarnemar úr iðnnámi

