Líf í borgarholtsskóla

08/05/2026 | Ritstjórn

Árbítur handa undraverum

Litríkur hópur á leið á vit ævintýranna

Litríkur hópur á leið á vit ævintýranna

Í morgun fylltist skólinn af alls konar kynjaverum. Hér voru til dæmis á ferðinni vampírur, kúrekar, kýr, bangsar, mörgæsir og íþróttaálfar frá níunda áratugnum sem við eigum ekki að venjast svona dags daglega á göngunum.

Þarna var um að ræða væntanlega útskriftarnemendur sem klæddu sig upp í tilefni af svo kallaðri dimmisjón sem er hátíð nemenda í tilefni af námslokum í framhaldsskóla. Samkvæmt hefð leyfist nemendum að mæta óvenjulega klæddir og fara út fyrir hegðunarrammann einu sinni á námsferlinum og það er í aðdraganda útskriftar.

Í ár var hópurinn einstaklega fjörugur og frumlegur. Hópar tóku sig saman og klæddu sig í stíl og var þess gætt að enginn sem á annað borð kærði sig um að mæta í búning yrði útundan. Útkoman var sérlega glæsileg eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Nemendunum var boðið í vel útilátinn morgunverð í matsal kennara sem fram að því hafði verið forboðinn staður fyrir þá. Síðan héldu krakkarnir út í borgina með langferðabifreið á vit óvæntra áskorana. Þeim er óskað góðrar og fallegrar skemmtunar í sólarblíðunni.