bókmennt, handmennt, siðmennt

Saga skólans

Mynd af skólanumBygging Borgarholtsskóla hófst árið 1995 og hvíldi framkvæmdin á samningi milli ríkis, Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar. Efnt var til samkeppni um hönnun hússins. Tilboð Arkitektastofu Finns og Hilmars og Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar reyndust hagstæðust. Húsnæðið var unnið í áföngum og skiptist í tvö verknámshús, þriggja hæða bóknámshús og þriggja hæða stjórnunarálmu fyrir skrifstofu, bókasafn og matsal. Starfsemi skólans hófst haustið 1996 en þá voru fyrstu þrír áfangar hússins tilbúnir til notkunar. Fjórða áfanga var lokið í árslok 1999 og var húsið þá fullbyggt. Skólanum er ætlað að hýsa um 1000 nemendur í starfs- og bóknámi. Mikil birta og gott rými einkenna skólahúsið.

Skólameistari, Eygló Eyjólfsdóttir, var ráðinn til starfa haustið 1995 og hafði því eitt ár til að undirbúa skólastarfið ásamt skólanefnd. Meðal nýjunga var fjölmenntabraut sem ætluð var nemendum sem voru óráðnir um námsbraut sína og starfsnámsbrautir á sviði verslunar og félagsþjónustu. Strax í upphafi hófst kennsla í fornámi og á bóknámsbrautum til stúdentsprófs og iðnnám á sviði málm- og bíliðna. Starfsemi sérnámsbrautar hófst á fyrsta starfsári. Samstarf atvinnulífs og skólans var með nýstárlegum hætti því Fræðslumiðstöð bílgreina stýrði námi í bílgreinum og rak auk þess eftirmenntun bílgreinamanna í skólanum samkvæmt sérstökum samningi til ársloka 1998 en þá yfirtók skólinn alla kennslu í bíliðnum.

Hvítir kollarBorgarholtsskóli var settur í fyrsta sinn mánudaginn 2. september 1996. Nemendur voru tæplega 400 talsins og kennarar og annað starfsfólk á fimmta tug. Stöðugur vöxtur og þróunarstarf hafa einkennt fyrstu starfsár skólans. Hann hefur verið frumkvöðull á ýmsum sviðum. Meðal þeirra er fjölmenntabraut sem almenn námsbraut tekur mið af, félagsþjónustubraut og námsbraut í margmiðlunarhönnun. Skólinn hefur séð um nám fyrir skólaliða og stuðningsfulltrúa í grunnskólum Reykjavíkur, stóriðjuskóli álversins í Straumsvík er að hluta til undir forsjá Borgarholtsskóla og eftirmenntun í málmiðngreinum hefur farið fram í skólahúsinu. Auk þess sækja grunnskólanemar úr skólum í hverfinu og úr Mosfellsbæ nám á framhaldsskólastigi í málmiðngreinum, ensku og stærðfræði.

BHS2006Haustið 2006 var tíu ára afmæli skólans haldið hátíðlegt með ýmsu móti. Opið hús var í skólanum á Grafarvogsdeginum þann 9. september, efnt var til hlaups/göngu/hjólreiða þar sem nemendur og starfsfólk ferðuðust samtals um 700 km vegalengd, staðið var fyrir  námsmaraþoni og haldnir voru tónleikar í Grafarvogskirkju. Segja má að þema hátíðarhaldanna hafi verið söfnun sem efnt var til í því skyni að safna fé fyrir skóla sem byggja átti í bænum Jaranwala í Pakistan undir yfirskriftinni Látum gott af okkur leiða. Fór söfnunin fram í samstarfi við ABC barnahjálp. Markmiðið var að safna nægilegu fé til að reisa mætti myndarlegt skólahúsnæði fyrir börnin í Jaranwala og er skemmst frá því að segja að það tókst. Söfnuðu nemendur og starfsfólk Borgarholtsskóla um 3 milljónum króna. Skólinn í Pakistan tók til starfa í nýju húsnæði í apríl 2007 (sjá nánar http://www.abc.is).

Á haustönn 2008 voru rúmlega 1100 nemendur í dagskóla Borgarholtsskóla og á fimmta hundrað nemenda í kvöldskóla, síðdegisnámi, dreifnámi og framhaldsskólanámi fyrir grunnskóla. Samtals starfa tæplega 140 manns við skólann þar af um 120 í fullu starfi. Núverandi skólameistari er Bryndís Sigurjónsdóttir.

Skólinn hefur frá upphafi gert það að stefnu sinni að stuðla að bókmennt, handmennt og siðmennt nemenda sinna. Einkunnarorð skólans eru: agi, virðing, væntingar.

    Duglegir nemendur á AN  Aðalsteinn og Hjálmar  Lóðum lyft með Höllu Karen  Hákon með nemendum á starfsbraut  Sigríður tölvukennari ásamt nemanda  Egill Þór ásamt nemendum

 

 



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica