bókmennt, handmennt, siðmennt

Fyrrverandi nemendur

Sindri Stefánsson

Sindri Stefánsson

Læknisfræðinemi við Háskóla Íslands

Eins og flestir pældi ég mikið í því hvað ég ætlaði að gera við restina af lífi mínu og hvaða framhaldsskóla ég ætti að fara í þegar ég lauk grunnskóla. Ég fór í kynningarferðir í marga skóla og þeir voru allir mjög flottir. Á endanum valdi ég náttúrufræðibraut í skóla í mínu hverfi, Borgó. Ég komst semsagt að þeirri niðurstöðu að hann væri ekkert verri en hinir skólarnir sem ég hafði heimsótt og þar að auki gætt ég sofið alveg til klukkan 8 á morgnana (sem var alveg magnaður kostur!).

Skólinn fannst mér mjög fínn. Ég var dálítið smeykur við áfangakerfið til að byrja með en þegar ég fór að átta mig á því fékk ég byr undir báða vængi og gat stjórnað mínum eigin námshraða. Síðan hætti ég hreinlega að botna í því af hverju einhver skóli væri með bekkjarkerfi, því að falla á heilli önn út af einu fagi finnst mér út í hött. Ég kynntist einnig mun fleiri krökkum en ég hefði kynnst í bekkjarkerfi. Mér þykir enn þann dag í dag mjög vænt um starfsbrautina í Borgó. Hún var alltaf með í öllu sem var gert og er órjúfanlegur hluti af skólanum.

Félagslífið í skólanum var mjög skemmtilegt og myndi ég segja að ég hafi verið ágætlega virkur í því. Ég skemmti mér mjög vel í Borgó þó ég hefði aldrei haft áhuga á því að starfa í nemendafélaginu eða öðrum félögum/nefndum innan skólans. Þá fór ég í tvær frábærar utanlandsferðir tengdar tungumálaáföngum í Borgó sem verða seint toppaðar, því báðar voru óendanlega skemmtilegar.

Náttúrufræðibrautin í Borgó kom mér skemmtilega á óvart. Kennararnir voru nánast allir hressir, náðu vel sambandi við okkur nemendurna og tókst að troða upplýsingunum inn í hausinn á okkur! Skólinn og kennararnir voru langt frá því að vera eins rykfallnir og ég bjóst við. Svo lenti í því einn daginn að náttúrufræðikennarinn ákvað að kenna aukaáfanga í taugalífeðlisfræði upp á sitt einsdæmi. Með miklu striti tókst honum að troða þessum aukatíma inn í hádegishléinu, sem þýddi að hann var að eyða sínum eigin matartíma í að kenna okkur. Ég sló auðvitað til og skráði mig í tímann, sem ég sé ekki eftir í dag, því þar fann ég loksins það sem ég hafði virkilega áhuga á. Skólinn hjálpaði mér þannig að átta mig á því hvert ég vildi stefna í framhaldinu.

Þegar ég lít til baka hefði ég ekki getað valið betur, og þó svo í ég viti í raun ekki hvernig allt hefði runnið fram hefði ég valið öðruvísi, þá veit ég að ég myndi hiklaust velja það sama aftur.

Stundirnar í Borgó voru góðar.


Fleiri nemendur

Agnes Wild

Agnes Þorkelsdóttir Wild

Leiklistarnemi í London

Ef ekki væri fyrir Borgó, frábæra kennara og vini held ég að ég væri ekki sama manneskja og ég er í dag.

Lesa meira
 
Anna Rakel Róbertsdóttir

Anna Rakel Róbertsdóttir

Grafískur hönnuður

Margmiðlunarhönnunin var ofsalega góð undirstaða fyrir Listaháskólann og ég stóð vel að vígi að öllu leyti, bæði tæknilega og í bóklegum fögum.

Lesa meira
 
Ásta Friðriksdóttir

Ásta Sigrún Friðriksdóttir

Íþróttafræðinemi í Bandaríkjunum

Félagslífið í Borgó var virkilega gott og það gátu allir fundið sér eitthvað við hæfi, hvort sem þeir voru á félagsfræðabraut eða í bifvélavirkjun.

Lesa meira
 
Aðalheiður Helgadóttir

Aðalheiður Helgadóttir

Lögfræðingur

Í dag starfa ég sem lögfræðingur og nýti það sem ég lærði í Borgó á hverjum einasta degi, hvort sem er í mannlegum samskiptum eða við almenn fræðistörf.

Lesa meira
 
Daðey Albertsdóttir

Daðey Albertsdóttir

Sálfræðinemi við Háskóla Íslands

Sálfræðideildin er talin vera ein af fjórum erfiðustu deildunum í Háskóla Íslands og var grunnur minn fyrir þetta nám einstaklega góður.

Lesa meira
 
Eiríkur Ragnarsson

Eiríkur Ástþór Ragnarsson

Hagfræðinemi á Nýja-Sjálandi

Mér fannst Borgó frábær af mörgum ástæðum en það sem stóð mest upp úr eftir að ég útskrifaðist var hversu persónulegur skólinn er.

Lesa meira
 
Guðni S. Guðjónsson

Guðni S. Guðjónsson

Flugmaður

Góðir kennarar ásamt fjölbreyttu úrvali af námsleiðum gerir skólann sérstaklega áhugaverðan og veitir fólki góðan grunn fyrir framtíðina.

Lesa meira
 
Inga Rut Ingadóttir

Inga Rut Ingadóttir

Leikskólakennari

Eitt af aðalsmerkjum skólans eru kennararnir. Fyndnir, skrýtnir, gáfaðir, sérstakir, fallegir og frumlegir kennarar sem beittu skemmtilegum kennsluaðferðum og gáfu nemendum frelsi til að vinna eftir sínu áhugasviði.

Lesa meira
 
Ingunn Ragnarsdóttir

Ingunn Anna Ragnarsdóttir

Með BA próf í ensku

Eftir að ég byrjaði í Borgó þá gekk mér vel og með stuðningi og hjálp frá kennurum og starfsfólki skólans uppgötvaði ég að skóli og nám átti mjög vel við mig og að ég væri bara nokkuð góður námsmaður.

Lesa meira
 
Karen Anna Shelton

Karen Anna Shelton

Kennaranemi í Bandaríkjunum

Í Borgó geta allir fundið sér eitthvað við sitt hæfi, og það var þess vegna sem mér leist svo ótrúlega vel á skólann.

Lesa meira
 
Karl Andrésson

Karl Andrésson

Meistaranemi í vinnusálfræði

Áhugi minn á sálfræði kviknaði í Borgó og var námið þar virkilega góður undirbúningur fyrir háskólanámið. Mikið úrval var af sálfræðiáföngum sem voru fjölbreyttir, skemmtilegir og krefjandi.

Lesa meira
 
Rútur Örn Birgisson

Rútur Örn Birgisson

Laganemi við Háskóla Íslands

Borgarholtsskóli reyndist mér mjög vel til undirbúnings fyrir háskólanám. Ég byrjaði upphaflega á því að læra bifvélavirkjun við skólann.

Lesa meira
 
Sandra Rós Björnsdóttir

Sandra Rós Björnsdóttir

Listnámsnemi í San Francisco

Það sem mér fannst best við Borgó hvað varðar kennslu er hversu mikið sjálfstæði maður fékk til að skila inn sínum verkefnum.

Lesa meira
 
Sindri Stefánsson

Sindri Stefánsson

Læknisfræðinemi við Háskóla Íslands

Ég var dálítið smeykur við áfangakerfið til að byrja með en þegar ég fór að átta mig á því fékk ég byr undir báða vængi og gat stjórnað mínum eigin námshraða.

Lesa meira
 
Steinþór Helgi Arnsteinsson

Steinþór Helgi Arnsteinsson

Umboðsmaður og nemi

Ég verð einnig að fá að minnast og þakka fyrir þann góða stuðning og það ótrúlega andrúmsloft sem skapaðist á meðan ég tók þátt í Gettu betur fyrir hönd skólans.

Lesa meira
 


Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica