bókmennt, handmennt, siðmennt

Fréttir

Þorragleði

27.1.2012

Ásdís íslenskukennari og Ingi Bogi aðstoðarskólameistari smakka mysu

Til að efla heilsu og hug starfsfólks bauð íslenskudeild til þorrastofu í löngu frímínútum í dag. Flestir mættu í einhverri lopaflík eða með lopaprýði af einhverju tagi.

Á borðum var þjóðlegur matur í formi smárétta. Meðal annars hákarl, lifrarpylsa, flatbrauð með hangikjöti, harðfiskur og mysa til drykkjar.

Litskrúðugur þorramatur Það vakti athygli hve réttirnir voru litskrúðugir eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Meðal nýmæla má nefna græn salatblöð eða gulrótarbitar á lifrarpylsu. Viðstaddir sungu nokkur lög, meðal annars Þoraþræl. Þetta var skemmtilegt framtak sem vakti mikla lukku meðal viðstaddra.


Konur í lopapeysum
Sunginn Þorraþræll

Senda grein



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica