bókmennt, handmennt, siðmennt

Um skólann

Upplýsingar um stjórn, stefnu og skipulag skólans eru í Skólanámskrá.


Borgarholtsskóli er framhaldsskóli, staðsettur við Mosaveg í Grafarvogi. Hann er framsækinn og tæknivæddur nútímaskóli með um 1500 nemendur og fjölbreytt námsframboð.


Merki Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli
við Mosaveg
112 Reykjavík

Opnunartími skrifstofu
mánud. - föstud. kl. 8:00-15:00

  Símanúmer: 535 1700
   Faxnúmer: 535 1701
   Netfang: bhs (hjá) bhs.is
   Kennitala: 700196-2169


Á stigagangi

Mikil birta og gott rými einkenna skólahúsið. Það skapar hlýlega og jákvæða umgjörð um skólastarfið.

Borgarholtsskóli hefur frá upphafi haft þá stefnu að stuðla að bókmennt, handmennt og siðmennt nemenda sinna.

Við skólann starfar samstilltur hópur starfsfólks sem sinnir kennslu, þjónustu við nemendur, stjórnun skólastarfsins ásamt eftirliti og þrifum á skólahúsnæðinu.

Leiðarljós í starfi okkar og samskiptum í skólanum eru agi, virðing, væntingar og við leggjum áherslu á jákvætt og hlýtt viðmót gagnvart nemendum.

Skólinn starfar eftir lögum um framhaldsskóla, aðalnámskrá framhaldsskóla og ýmsum reglugerðum sem Menntamálaráðuneytið gefur út.


Kort af staðsetningu Borgarholtsskóla

Sjá staðsetningu
skólans á korti


Grunnmynd skóli
Sjá skipulag húsa
á lóð skólans



Listnám

Borgarholtsskóli er einn af yngri framhaldsskólum landsins. Hann hefur frá upphafi kynnt ýmsar nýjungar í skólastarfi sem eru afrakstur markvissrar þróunarvinnu. Í skólanum er fjölbreytt námsframboð sem endurspeglast í fjölbreyttum nemendahópi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica