bókmennt, handmennt, siðmennt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla geymir þann ramma sem skólastarfinu er búinn. Hér má finna upplýsingar sem nýtast nemendum og kennurum í daglegu starfi, meðal annars skólareglur, upplýsingar um innritun og ýmsar stefnuskrár skólans.


Starfsmannastefna

Mötuneyti starfsfólksForsenda góðs árangurs í skólastarfi er fjölhæft og traust starfsfólk.

Starfsmenn Borgarholtsskóla vilja að í skólanum ríki andi jafnræðis þar sem hver starfsmaður nýtur sín og vex í starfi.

Í skólanum séu greið samskipti þar sem hverjum starfsmanni finnst hann vera mikilvægur hluti af heildinni.

Markmið:

Ráðningar

Hjá Borgarholtsskóla er staðið löglega og faglega að ráðningum.

  • Að öll störf séu auglýst í samræmi við starfsmannalög.
  • Að ráðning byggist á hæfni umsækjenda.
  • Að jafnréttissjónarmiða sé gætt við mannaráðningar.
  • Að nýr starfsmaður þekki stefnuskrá skólans og sé tilbúinn til að starfa í anda hennar.

Móttaka og þjálfun nýliða

Nýir starfsmenn Borgarholtsskóla njóta leiðsagnar og stuðnings.

  • Að tekið sé vel á móti nýjum starfsmönnum.
  • Að skólinn og reglur hans séu kynntar nýjum starfsmönnum.

Starfsþróun

Litið er á starfsþróun sem virkan þátt í skólastarfinu.

  • Að starfsmenn séu ánægðir og vaxi í starfi.
  • Að hlutverk starfsmanna séu skýr og þeir fái hvatningu í starfi.

Endurgjöf, laun, umbun

Skólinn veitir endurgjöf og umbun til starfsmanna vegna starfa og samskipta.

  • Að endurgjöf til starfsmanna sé regluleg og formleg en einnig óformleg eftir atvikum.
  • Að skólinn leggi sitt af mörkum til að styrkja jákvæðan starfsanda og félagslíf starfsmanna.

Jafnrétti

Hjá Borgarholtsskóla eru jafnréttissjónarmið í hávegum höfð.

  • Að samvinna og gagnkvæm virðing ríki milli allra starfsmanna skólans.
  • Að tækifæri til framgangs í starfi stjórnist af hæfni einstaklingsins en ekki af kynferði, aldri eða öðrum aðgreinandi þáttum.

 

Upplýsingar og samskipti

Í Borgarholtsskóla er stöðugt miðað að bættum samskiptum, bæði huglægum og hlutlægum.

  • Að upplýsingar um starfsemi skólans séu aðgengilegar.
  • Að starfsmenn hafi yfirsýn yfir skólastarfið og beri sjálfir ábyrgð á að afla sér upplýsinga sem þá varðar.
  • Að allir sem starfa við skólann temji sér jákvæð og uppbyggjandi samskipti.
  • Að starfsmenn vinni saman sem liðsheild.

 

Starfsskilyrði

Í Borgarholtsskóla er leitast við að starfsmenn hafi aðstöðu og aðbúnað til að sinna starfi sínu eins og til er ætlast.

  • Að ákvarðanataka í skólanum sem varðar starfsmenn sé gagnsæ og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.
  • Að skólinn leitist við að skapa starfsmönnum heilsusamlegt og öruggt starfsumhverfi.

 

Starfslok

Borgarholtsskóli stefnir að því að þegar starfsmenn hverfa frá störfum sé það í sátt.

  • Að farið sé að starfsmannalögum varðandi starfslok hver svo sem ástæða þeirra er.
  • Að starfsmönnum sé gert kleift að ljúka störfum á farsælan hátt.

  

Starfsmenn leggja sig fram um að starfa
í anda einkunnarorða skólans:

Agi - virðing - væntingar




Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica