bókmennt, handmennt, siðmennt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla geymir þann ramma sem skólastarfinu er búinn. Hér má finna upplýsingar sem nýtast nemendum og kennurum í daglegu starfi, meðal annars skólareglur, upplýsingar um innritun og ýmsar stefnuskrár skólans.


Jafnréttisáætlun

Lært á ganginumÍ Borgarholtsskóla skal stuðlað að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Stefnt er að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi.

Jafnréttisáætlun Borgarholtsskóla

1. Inngangur

Í Stjórnarskrá lýðveldisins stendur:

Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.

Þetta lagaákvæði liggur til grundvallar jafnréttisáætlun Borgarholtsskóla.

2. Stefna

Stefna Borgarholtsskóla er að allir, nemendur sem starfsmenn, njóti jafns réttar án tillits til aðgreinandi þátta. Þannig nýtist mannauður skólans best.

3. Markmið og leiðir

3.1 Jafnréttisnefnd

Hlutverk jafnréttisnefndar er að framfylgja og endurskoða jafnréttisáætlun skólans í samráði við skólameistara og sérstaka trúnaðarmenn jafnréttisnefndar.

Kosið skal í jafnréttisnefnd af hálfu starfsmanna á tveggja ára fresti á starfsdegi vorannar. Í henni skulu sitja: Einn fulltrúi nemenda tilnefndur af nemendafélagi, einn fulltrúi kennara og einn fulltrúi annarra starfsmanna.

Nefndin skal funda reglulega.

Telji starfsmaður eða nemandi að reglur um jafnrétti séu brotnar innan skólans, skal hann leita til fulltrúa jafnréttisnefndar.

3.2 Ráðningar

Í auglýsingum eru störf ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga. Við ráðningu nýs starfsmanns skal gæta jafnréttissjónarmiða.

Leitast skal við að halda fjölda starfsmanna af hvoru kyni sem jöfnustum svo fremi sem umsækjendur eru jafnhæfir. Konur og karlar skulu njóta sömu launakjara og hafa jafna möguleika á launuðum aukastörfum innan skólans. Fólki skal eigi heldur mismunað í launum eftir öðrum aðgreinandi þáttum.

3.3 Starfsþróun og endurmenntun

Starfsfólki eru tryggðir möguleikar til endurmenntunar og starfsþróunar, óháð kyni.

3.4 Starfsskilyrði

Vinnuaðstaða skal taka mið af þörfum beggja kynja. Við úthlutun verkefna skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað.

3.5 Samræming fjölskyldulífs og vinnu/náms

Borgarholtsskóli gerir starfsfólki sínu kleift að samræma störf sín og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu eftir því sem við verður komið. Skólinn tekur einnig tillit til sérstakra aðstæðna nemenda vegna skólasóknar.

3.6 Starfsandi og líðan starfsmanna og nemenda

Borgarholtsskóli leggur áherslu á góða líðan allra sem í skólanum starfa og góðan starfsanda. Allir starfsmenn og nemendur skólans eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu. Einelti og kynferðisleg áreitni eru ekki liðin.

4. Ábyrgð

Skólameistari ber ábyrgð á að jafnréttisáætlun sé framfylgt í samvinnu við jafnréttisnefnd.

5. Sérstakar aðgerðir

5.1 Skipun sérstakra trúnaðarmanna.

Skólastjórnendur í samráði við jafnréttisnefnd skipa trúnaðarmenn, einn af hvoru kyni, vegna eineltis/kynferðislegrar áreitni. Þeir skulu móta verklagsreglur um meðferð slíkra mála. Jafnréttistrúnaðarmenn voru fyrst skipaðir á vorönn 2006. Skipun þessi skal endurskoðast á tveggja ára fresti.

5.2 Stofnun jafnréttisnefndar

Stofnuð var jafnréttisnefnd á vorönn 2006. Verkefni þessarar nefndar er að kanna stöðu jafnréttismála, kynna niðurstöður og móta starf nefndarinnar í ljósi þeirra. Í því felst t.d. að kanna kynjaskiptingu:

a)   í hinum ýmsu störfum innan skólans.
b)   í námsvali nemenda.
c)   meðal nemenda sem nýta séraðstoð skólans.
d)   í launuðum viðbótarstörfum og einstökum verkefnum starfsmanna.
e)   í nefndum og ráðum.
f)   í endurmenntun og starfsþróun starfsmanna.

Auk þess skal nefndin:
-    móta ferla um meðferð einstakra mála.
-    standa fyrir fræðslu um jafnréttistengd málefni a.m.k. einu sinni á   kjörtímabili.

 

Jafnréttisáætlun BHS var endurskoðuð af jafnréttisnefnd vorið 2008.

 





Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica