Forvarnir
Skólinn leggur áherslu á skýrar reglur, fræðslu og stuðning varðandi forvarnir.
Við Borgarholtsskóla starfa félags- og forvarnafulltrúar og forvarnateymi.
Félags- og forvarnafulltrúar eru tengiliðir allra innan skólans sem vinna að forvörnum og uppbyggingu þeirra og hefur einnig tengsl út í samfélagið. Starf félags- og forvarnafulltrúa felst í því að hafa áhrif á viðhorf og hegðun ungs fólks og hvetja það til að velja heilbrigðan lífstíl án vímugjafa.

