bókmennt, handmennt, siðmennt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla geymir þann ramma sem skólastarfinu er búinn. Hér má finna upplýsingar sem nýtast nemendum og kennurum í daglegu starfi, meðal annars skólareglur, upplýsingar um innritun og ýmsar stefnuskrár skólans.


Erlend samskipti

Upplýsinga- og fjölmiðlabrautÁ undanförnum árum hefur verið töluvert um erlend samskipti á vegum nemenda og kennara í Borgarholtsskóla. Sem dæmi má nefna að í nokkurn tíma hefur staðið yfir samstarf milli málm- og véltæknideildar skólans og framhaldsskóla í Bregenz í Austurríki og er það fólgið í nemendaskiptum. Einnig má nefna að nemendur á almennri námsbraut II hafa farið bæði til Örebro í Svíþjóð og Kaupmannahafnar með tilstyrk Nordplus Junior auk þess sem nemendur frá þessum stöðum hafa heimsótt Borgarholtsskóla. Þessu til viðbótar má nefna að nemendur og kennarar í málmiðgreinum eru þátttakendur í Comeniusarverkefninu "Train for Europe", en það er fólgið í því að hvert þátttökuland smíðar einn vagn í sameiginlega járnbrautarlest, og tungumálakennarar og kennarar í listnámi hafa tekið þátt í verkefnum á vettvangi Evrópusambandsins.

Auk þessa hafa nemendur og kennarar skólans verið duglegir að fara í námsferðir til víkka sjóndeildarhringinn. Meðal þeirra sem lagt hafa land undir fót eru sálfræðinemar, leiklistarnemar, félagsfræðinemar og nemendur í erlendum tungumálum.

 

Erlent samastarf á vegum lista- og fjölmiðlasviðs

Fimm verkefni lista- og fjölmiðlasviðs hlutu árið 2008 styrkt frá Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Tveir kennarar fóru haustið 2008 til Tartu í Eistlandi til að undirbúa starfsnám tveggja nemenda vor 2009 við Tartu Art School. 

SAMPO er samstarfsverkefni Borgarholtsskóla, Tartu Art School í Eistlandi og NortKarelia College Outokumpu í Finnlandi. Samstarfsaðilar eru í hverju landi og er CCP games íslenski samstarfsaðilinn. Verkefnið byggir á því að nemendur og kennarar skólanna þriggja, ásamt samstarfsaðilum, búa til og þróa verkefni sem byggir á þjóðsagnararfleið landanna. Fyrirhugaðar eru tveggja vikna vinnustofur í hverju þátttökulandi. Verkefninu lýkur 2010.

Í SOFIA verkefninu sem stýrt er af Iðunni fræðslusetri er Borgarholtsskóli samstarfsaðili ásamt tveimur öðrum framhaldsskólum, Flensborg og Tækniskólanum. Verkefnið snýst um að yfirfæra tæknilausn sem var upphaflega þróuð í CNA CEFAG skólanum í París til Íslands og Spánar.  Nýjungin felst í þróun á sýndarrými í kennslu sem nýtir sér tækniþróun í grafískri miðlun til að kenna upplýsinga- og fjölmiðlagreinar í iðn- og starfsmenntaskólum. Verkefninu lýkur 2010.

ArtECult III er samstarfsverkefni fjölda skóla og fyrirtækja í Evrópu sem hefur það markmið að þróa starfsmenntun í skjálistum í framhaldsskólum. Borgarholtsskóla hefur verið boðin þátttaka í næstu tveggja ára áætlun sem myndi leiða til þess að jafnaði myndu tveir nemendur fara utan á hverri önn í starfsnám og tveir nemendur frá erlendum skólum myndu dvelja hér í 4-8 vikur.

 

Þróun í sérkennslu

Nemendur á AN 1Menntamálaráðuneytið fól Borgarholtsskóla að vera sérstakur samstarfsaðili fyrir Íslands hönd í Evrópusamstarfi í þróun sérkennslu. Um er að ræða starf við Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu, „The European Agency for Development in Special Needs Education“. Miðstöð þessi er sjálfstæð stofnun sem menntamálaráðuneyti 27 þátttökuþjóða standa að.

Aðalmarkmið miðstöðvarinnar er að vinna að auknum gæðum og endurbótum í sérkennslumálum og skapa öflugt samstarf á Evrópugrundvelli á þessu sviði. Aðalskrifstofa samtakanna er staðsett í Danmörku þar sem öll starfsemin er samræmd og samhæfð. Einnig er skrifstofa í Brussel. Af hálfu Íslands hefur Guðni Olgeirsson, deildarstjóri í Menntamálaráðuneytinu, verið fulltrúi ráðuneytisins. Fyrir hönd Borgarholtsskóla hefur Bryndís Sigurjónsdóttir, aðstoðarskólameistari, séð um starfið.

Sem evrópskur dreifingaraðili upplýsinga er upplýsingum safnað, unnið úr þeim og dreift á vef Evrópumiðstöðvarinnar, með fréttabréfum og skýrslum. Á hverju ári er kynntur fjöldi tiltekinna verkefna og núverandi forgangsmál eru m.a.: Bekkjar- og skólastarf, Leiðin úr skóla og út á vinnumarkað, Upplýsinga- og samskiptatækni, Tækni upplýsingasamfélagsins og sérkennsluþarfir, Sérkennsla og fjárveitingar, Stuðningur við kennara, Námsmat nemenda með sérþarfir, Nýbúafræðsla.

Frekari upplýsingar er að finna á vef miðstöðvarinnar http://www.european-agency.org/. Á vefnum er að finna samanburðarupplýsingar um hvernig sérkennsla fer fram hjá öllum þátttökulöndunum og einnig ítarlegar greinargerðir frá hverju landi fyrir sig ásamt upplýsingum um tengiliði.

 



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica