Prófareglur
Nokkur atriði varðandi skrifleg próf og framkvæmd þeirra.
- Áfangastjóri birtir próftöflu skólans. Nemendur geta nálgast ljósritað eintak á skrifstofu skólans. Hún er einnig birt á vef skólans.
- Próftaflan sýnir niðurröðun prófa í öllum áföngum, prófdaga og próftíma.
- Próf eru haldin tvisvar á hverjum prófdegi, kl. 9 og kl. 13. Í undantekningartilfellum eru próf einnig haldin kl. 11.
- Kennarar eða ábyrgðarmenn prófa skulu skila prófum fjölfölduðum til prófstjóra, a.m.k. 24 tímum fyrir próf. Viðkomandi kennarar skulu ganga úr skugga um að fjölföldun sé rétt. Skila þarf 1 eintaki fyrir hvern próftaka, a.m.k. 1 aukaeintaki fyrir hverja prófstofu og 1 eintaki fyrir skjalasafn skólans.
- Yfirsetukennarar fari tímanlega í prófstofur, undirbúi þær þannig að nemendur geti sest í rétt sæti og hafið próf á auglýstum tíma.
- Yfirsetukennari skal í upphafi prófs gera nemendum grein fyrir reglum sem gilda um próftöku og viðurlög við því að hafa rangt við í prófi.
- Yfirsetukennari ber saman nafnalista sem er innan á kápu skjalamöppunnar sem inniheldur prófin og skilríki próftaka.
- Yfirsetukennarar gangi þannig frá prófúrlausnum, að þeim sé raðað eftir nöfnum kennara og síðan í stafrófsröð nemenda. Skila á úrlausnum til prófstjóra að loknu prófi.
- Yfirsetukennarar gæti vel að því að nemendur skili prófúrlausnum á tilsettum tíma. Engar undantekningar eru á þessu nema skriflegar séu frá náms- og starfsráðgjafa (sérúrræði í prófum).
- Verði yfirsetukennari var við að nemandi hafi rangt við í prófi, skal strax gera upptæk sönnunargögnin (svindlmiða eða slíkt). Nemandinn skal sitja í sæti sínu þar til kallað hefur verið á prófstjóra sem fylgir nemanda til skólastjórnenda, þar sem úrskurðað verður í málinu.
- Nemanda sem staðinn er að misferli í prófi skal vísa frá prófi og getur hann átt von á brottvikningu úr skóla, tímabundið eða til frambúðar, eftir alvarleika brots. Hið sama gildir um misferli þar sem námsmat felst í öðru en skriflegu eða munnlegu prófi.
- Kennarar sækja prófúrlausnir til prófstjóra að loknum prófum.

