bókmennt, handmennt, siðmennt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla geymir þann ramma sem skólastarfinu er búinn. Hér má finna upplýsingar sem nýtast nemendum og kennurum í daglegu starfi, meðal annars skólareglur, upplýsingar um innritun og ýmsar stefnuskrár skólans.


Reglur um námsframvindu

  • Nemandi í fullu námi skal ljúka að lágmarki 9 einingum á önn. Undanþegnir ákvæði þessu eru nemendur á almennum námsbrautum (framhaldsskólabraut) og sérnámsbraut. Skólameistari getur heimilað undantekningu frá þessari reglu vegna skilgreindra námsörðugleika, veikinda og annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
  • Ljúki nemandi ekki tilskildum einingafjölda á önn er skólastjórnendum heimilt að takmarka þann fjölda eininga sem hann fær að skrá sig í á næstu önn. Nemandinn getur þurft að sækja um skólavist að nýju og er honum þá gerð grein fyrir stöðu sinni þannig að hann geti einnig sótt um skólavist í öðrum framhaldsskólum. Skólanum er ekki skylt að endurinnrita nemandann.
  • Til að standast áfanga og fá leyfi til að hefja nám í næsta áfanga viðkomandi greinar þarf lágmarkseinkunnina 5. Þó er nemanda heimilt að útskrifast með einkunnina 4 í lokaáfanga greinar eða stökum áfanga ef hann á umframeiningar úr öðrum greinum.
  • Nemanda er einungis heimilt að þreyta próf þrívegis í sama áfanga.
  • Ef fall á lokaprófi í einum áfanga kemur í veg fyrir að nemandi geti útskrifast fær hann að taka endurtektarpróf í þeim áfanga í lok sömu annar.
  • Nemandi, sem fær einkunnina 8 eða hærra í námsáfanga, getur sótt um til skólameistara að stunda nám í næsta áfanga í greininni án þess að sækja kennslustundir (P-áfangi).


Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica