Lista- og fjölmiðlasvið
Á lista- og fjölmiðlasviði er boðið upp á fjölbreytt nám til að mæta vaxandi þörf fyrir menntun á sviði nýmiðla og upplýsingatækni. Nám á þessu sviði hófst í Borgarholtsskóla haustið 1999.
Í byrjun náms á lista- og fjölmiðlasviði er áhersla lögð á grundvallaratriði í miðlun myndrænna upplýsinga með þjálfun í hefðbundnum myndlistargreinum á borð við teikningu, formfræði og litafræði. Um leið er byrjað að kenna undirstöðuatriði myndvinnslu, vefsíðugerðar, grafískrar hönnunar og kvikmyndunar. Jafnframt læra nemendur að skoða og skilgreina miðlun, menningu og listir í víðtæku samhengi en náminu lýkur með sérhæfingu á sviði prent- og skjámiðlunr eða fjölmiðlatækni. Á öllum stigum námsins er áhersla lögð á skapandi starf, gagnrýna hugsun, verkefnavinnu og hópvinnu.
Dagskóli
Í dagskóla er hægt að velja um tvær námsleiðir eða tvö kjörsvið, annars vegar prent- og skjámiðlun og hins vegar fjölmiðlatækni, en báðum námsleiðum lýkur með listnámsbrautarprófi sem að jafnaði tekur 3 ár að ljúka. Báðar námsleiðirnar hafa sameiginlegan grunn (37 einingar) þar sem nemendur fá undirstöðuþekkingu í teikningu, lita- og formfræði, menningarfræði, ljósmyndasögu, kvikmyndasögu, vefsíðugerð, ljósmyndun, hljóðvinnslu, grafískri hönnun og kvikmyndun. Sérhæfingin (kjörsviðin, 20 einingar) felst í því að nemendur í fjölmiðlatækni fá meiri kennslu í öllu sem snertir tækni á ljósvakamiðlum, s.s. vídeóupptökum, útsendingum úr myndveri, hreyfimyndagerð og kvikmyndagerð, á meðan nemendur í prent- og skjámiðlun kafa betur í útlitshönnun, leturfræði, umbrot og vefsíðugerð.
Auk fagáfanga þurfa allir nemendur að ljúka 36 einingum í almennum bóknámsgreinum, 9 einingum í frjálsu vali og 6 í íþróttum.
Nám í prent- og skjámiðlun og fjölmiðlatækni er góður undirbúningur undir nám í listaháskólum eða öðrum sérskólum á sviði lista og hönnunar en fjölmiðlatæknin veitir jafnframt starfsréttindi að eins árs starfsnámi loknu. Með því að bæta einu ári við eftir listnámsbrautarpróf í almennum bóknámsgreinum geta nemendur lokið stúdentsprófi af listnámsbraut (35 einingar í viðbót eða 140 einingar samtals).
Dreifnám
Í dreifnámi er einnig boðið upp á prent- og skjámiðlun, eins og í dagskóla, en þó aðeins fagáfanga (ekki almennar bóklegar greinar). Jafnframt er í dreifnámi boðið upp á fagáfanga í bókasafnstækni sem, eins og fjölmiðlatæknin, getur veitt starfsréttindi að loknu eins árs starfsnámi. Bókasafnstæknin sérhæfir fólk til alhliða starfa á bókasöfnum eða öðrum upplýsingamiðstöðvum við hlið bókavarða við tæknilega aðstoð á sviði upplýsingatækni og margmiðlunar. Sjá dreifnám.

