bókmennt, handmennt, siðmennt
Félagslíf nemenda í Borgarholtsskóla er mjög fjölbreytt. Lögð er áhersla á að allir nemendur finni eitthvað við sitt hæfi. Dæmi um viðburði er glæsiball, þemadagar, bíladagar og ýmsar keppnir meðal nemenda.


Foreldraráð

Í lögum um framhaldsskóla frá árinu 2008, 50. grein, segir að í framhaldsskólum skuli starfa foreldraráð. Er það í samræmi við að sjálfræðisaldur ungmenna er 18 ár og þangað til bera forráðamenn ábyrgð á börnum sínum.

Meginverkefni foreldraráðs eru að styðja við skólastarf, efla tengsl forráðamanna ólögráða nemenda og skólans og huga að hagsmunamálum nemenda. Foreldraráð mótar sér starfsreglur og verksvið.

Foreldraráð veturinn 2011-2012

Á aðalfundi foreldraráðs sem haldinn var þann 11. október var mynduð ný stjórn. Anna María Schmidt er formaður, Hulda Markúsdóttir ritari, Elísabet Magnúsdóttir og Guðrún Sóley Guðnadóttir meðstjórnendur, ásamt Aðalheiði Kr. Ragnarsdóttur sem situr áfram frá síðasta ári. Ásdís Kristinsdóttir starfar með stjórn f.h. skólans. Anna María er jafnframt fulltrúi foreldraráðs í skólaráði.

Lög Foreldraráðs Borgarholtsskóla - FoB



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica