Dreifnám

Borgarholtsskóli býður upp á metnaðarfullt dreifnám á nokkrum námsbrautum skólans.
- Nám í margmiðlunarhönnun
- Nám á sviði upplýsingatækni / bókasafnstækni
- Dipómunám í margmiðlun
- Nám fyrir félagsliða
- Viðbótarnám fyrir félagsliða
- Nám fyrir skólaliða í grunnskólum
- Nám fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum
- Nám fyrir leiðbeindur í leikskólum
- Nám á sviði félagsmála og tómstunda
- Nám í iðngreinum bílgreina
- Nám í málm- og véltæknigreinum
Nánari upplýsingar um þessa námskosti eru á heimasíðu dreifnáms BHS.
Kennslustjórar viðkomandi námsbrauta veita upplýsingar varðandi inntökuskilyrði og hugasnlegt mat á fyrra námi eða störfum:
Listnámsbraut - bókasafnstækni: Ari Halldórsson; ari@bhs.is
Félagsliðabraut / aðstoðarfólk í skólum / félags- og tómstundanám: Þórkatla Þórisdóttir; thorkatla@bhs.is
Bíliðngreinar: Kristján M. Gunnarsson; kristjang@bhs.is
Dreifnámsstjóri: Kristján Ari Arason; krisara@bhs.is
Málmiðngreinar: Aðalsteinn Ómarsson; adalsteinn@bhs.is
Upplýsingar um innritunargjöld.
Uppbygging námsins
Í dreifnámi er einungis boðið upp á kennslu í fagáföngum. Þeir nemendur sem þegar hafa lokið almennum bóklegum áföngum fá fyrra nám metið en öðrum býðst að taka viðkomandi áfanga í almennu fjarnámi.
Námið fer að mestu fram á vefnum og er því vænlegur námskostur fyrir nemendur sem vegna búsetu eða fjölskylduaðstæðna geta ekki sótt nám í dagskóla. Til að hljóta inngöngu í dreifnám verða nemendur að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að þeir séu búnir með því sem svarar til einu ári í framhaldsskóla.
Námið byggir á þrenns konar vinnuaðferðum; verkefnavinnu, þar sem nemendur vinna verkefni sem þeir sækja á netið og skila á netinu, staðbundnum lotum, þar sem nemendur hittast með kennara þrisvar sinnum á önn og netumræðum. Vikulegir fundir eru á netinu þar sem kennari og nemendur ræða námsefnið sín á milli. Skyldumæting er í staðbundnar lotur og í umræðutíma á neti.
Að öllu jöfnu eru staðbundnar lotur þrisvar á önn, þ.e.a.s. í upphafi annar, um miðbik annar og í lok annar. Loturnar standa yfir frá hádegi á föstudegi, allan laugardaginn og í einstaka tilfellum einnig fyrri hluta sunnudags. Umræðutímar eru á virkum dögum, annars vegar kl. 16:20 til 17:20 og hins vegar kl. 17:40 til 18.40.
Þetta fyrirkomulag gerir nemendum kleift að uppfylla fjölbreytt markmið námsins hvað varðar hópvinnu og umræður auk þess sem þeir hljóta góða hæfni í ýmsum tæknilegum atriðum.
Tækja- og hugbúnaður
Nemendur þurfa að hafa aðgang að góðum tölvubúnaði með nettengingu helst ADSL eða ISDN. Misjafnt er eftir brautum og inntaki náms hvaða forrit nemendur vinna með. Í upphafi náms fá nemendur kennslu og þjáflun varðandi tækjanotkun og vefsamskipti.
Mikilvægt er hins vegar að allir nemendur hafi yfir að ráða góðum og traustum skrifstofuhugbúnaði með ritvinnslu, töflureikni og glærugerð.
Á námsbrautum á sviði margmiðlunarhönnunar og upplýsingatækni þurfa nemendur að auki að verða sér úti um nokkur forrit skv. ábendingu kennara, t.d. Photoshop, Dreamweaver, Illustrator, InDesign og Flash. Nemendur þurfa einnig að hafa aðgang að stafrænni myndavél og skanna. Í kvikmyndaáföngum þurfa nemendur að hafa aðgang að stafrænni kvikmyndatökuvél. Í byrjun áfanga þurfa nemendur að vera búnir að setja upp þau forrit sem notuð eru í áföngum.

