bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Starfsþjálfun

Ingibergur með nemendum í bifvélavirkjunNemendur í bifreiðasmíði og bifvélavirkjun skulu ljúka 48 vikum í starfsþjálfun en bílamálarar 32 vikum. Starfsþjálfun er almennt ekki metin fyrr en eftir fyrstu önn í lotunámi. Það er þó á valdi viðkomandi sveinsprófsnefndar að meta starfsþjálfun. Starfsþjálfun skal tekin á viðurkenndu verkstæði og undir stjórn iðnmeistara í viðkomandi iðngrein. Gera skal samkomulag um starfþjálfun áður en hún hefst.
Eyðublöð vegna starfsþjálfunar geta iðnnemar fengið hjá Iðunni fræðslusetri (http://idan.is/eydublod/). Iðnnemum skal bent á að starfsþjálfunarsamkomulag leysir aðila ekki frá þeirri skyldu að gera ráðningarsamning eins og lög gera ráð fyrir.





banner1small

Þetta vefsvæði byggir á Eplica