bókmennt, handmennt, siðmennt
Á skólasafninu er góð vinnuaðstaða fyrir einstaklinga og hópa. Þar er hægt að sinna heimanámi, vinna að verkefnum eða nota tölvur. Á safninu er gott úrval af bókum og öðrum gögnum. Ef efnið sem vantar er ekki til er hægt að útvega það eða vísa á hvar það fæst.


Tímarit

DagblaðalesturTímaritin hér fyrir neðan eru flestöll í prentaðri áskrift á safninu. Tengill er á heimasíðu sumra þeirra á netinu en oft er ekki hægt að leita að greinum þar nema gefa upp aðgangsorð sem bókasafnið er með.

Efni fjölmargra erlendra tímarita er hins vegar aðgengilegt í gegnum vefin Hvar.is. Bókasafnið hefur greitt fyrir aðgang svo ekki þarf sérstakt lykilorð til að nota hann.
Til að leita að ákveðnu tímariti er best að nota tímaritaskrá á Hvar.is.
Til að leita að grein um ákveðið efni eða eftir ákveðinn höfund er best að nota Leitir.is.

Lista yfir íslensk veftímarit má finna á vef Landsbókasafns.

Tímarit.is er stafrænt bókasafn sem veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Aðgangur er öllum opinn

Hægt er að leita að efni í íslenskum tímaritum á vefnum Gegnir.is á eftirfarandi hátt: Ítarleit > slá inn titil, höfund eða efni > velja Tímarit - greinar > Leita.

Íslensk tímarit
ADHD : fréttabréf ADHD samtakanna
Almanak Hins íslenska Þjóðvinafélags
Arkitektúr
Björgun
Bókasafnið
Bændablaðið
Börn og menning
Ferðafélags Íslands : árbók
FÍB blaðið
Gátt : ársrit um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun
Geðvernd
Glæður
Grafarvogsblaðið
Hvati
Iðjuþjálfinn
Íslenskt mál og almenn málfræði
Íslenskur iðnaður
Lagnafélag Íslands : fréttabréf
Lifandi vísindi
Læknablaðið (rafræn útgáfa)
Málfríður
Náttúrufræðingurinn
Rauði borðinn
Raust : tímarit um raunvísindi og stærðfræði
Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
Sagan öll
Sagnir : tímarit um söguleg efni
Sálfræðiritið
Skírnir
Skólavarðan
Tímarit félagsráðgjafa
Tímarit hjúkrunarfræðinga (rafræn útgáfa)
Tímarit Máls og menningar
Tímarit um menntarannsóknir
Tímarit VM
Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
Uppeldi og menntun
Þroskahjálp
Þroskaþjálfinn
Þróunarmál
Öldrun

Erlend tímarit
Automotive Engineering (áskrift hætt 2011)
Chili (áskrift hætt 2010)
Communication Arts
Computer Arts
Deutsch perfekt
Educational Leadership
National Geographic
New Scientist (áskrift hætt 2010, rafrænn aðgangur sjá hvar.is)
Red Cross, Red Crescent
Sirene (áskrift hætt 2010)
Sociology review
SSGM : Service Station and Garage
Management
(áskrift hætt 2011)



- Uppfært maí 2012



Á bókasafni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica