bókmennt, handmennt, siðmennt
Á skólasafninu er góð vinnuaðstaða fyrir einstaklinga og hópa. Þar er hægt að sinna heimanámi, vinna að verkefnum eða nota tölvur. Á safninu er gott úrval af bókum og öðrum gögnum. Ef efnið sem vantar er ekki til er hægt að útvega það eða vísa á hvar það fæst.


Bókasafn

Bókasafn Borgarholtsskóla

Heilsulind hugans

Við Mosaveg, 112 Reykjavík
Sími: 535 1715. Fax: 535 1701
Netfang:
Safnið er á 3. hæð stjórnunarálmu.
Innanhússími: 715.

Opnunartími
Kennslu- og prófatími:
mánud. - fimmtud. kl. 8:00-16:30
föstud. kl. 8:00-15:00

Starfsmenn

Bára Stefánsdóttir safnstjóri og Ása Þorkelsdóttir bókasafnsfræðingur.

Þjónusta

Starfsmenn aðstoða safngesti við upplýsingaleit. Nýnemar fá í upphafi haustannar kynningu á safninu og læra að leita í Gegni, tölvuskrá safnsins. Leiðbeiningar í upplýsingaleit.

Vinnuaðstaða

Á safninu er góð vinnuaðstaða þar sem nemendur geta undirbúið sig fyrir kennslustundir, unnið að verkefnum og ritgerðum eða nýtt safngögnin á annan hátt. Einnig er aðstaða til hóp- og tölvuvinnu, hlustunar, myndbandanotkunar og ljósritunar. Í tölvum safnsins er hægt er að finna hvaða gögn eru til á safninu, skoða geisladiska og leita að heimildum á internetinu.

Tölvur

Á safninu eru 13 tölvur fyrir nemendur. Tvær þeirra eru myndvinnsluvélar tengdar skanna. Tvær tölvur eru eingöngu til að leita í tölvuskrá safnsins.

Merki bókasafnsdagsins


Safngögn

Alls eru nú um 8900 bækur, kort, myndbönd, mynddiskar, snældur, geislaplötur og geisladiskar á safninu. Tímarit  í áskrift eru 47. Boðið er upp á efni sem tengist öllum kennslugreinum skólans, auk undirstöðuefnis í öðrum fræðigreinum. Við reynum líka að hafa áhugavert efni til dæmis um íþróttir, tónlist, kvikmyndir og fleira.
Bókasafnið er eitt þeirra safna sem greiðir fyrir landsaðgang að rafænum tímaritum og gagnasöfnum.  Vefbókasafnið Snara.is (orðabækur og fleira) er aðgengilegt í öllum tölvum á netsvæði skólans.

Bókasafnskerfi

Haustið 2006 var skipt um tölvukerfi á safninu og gögn safnsins skráð í Gegni, landskerfi bókasafna. Útlán í gegnum Gegni hófust svo í janúar 2007. Gegnir er bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. Kerfið veitir aðgang að skrám um safnkost flestra bókasafna landsins.

Flokkunarkerfi

Bókum og myndböndum er raðað upp eftir flokkunarkerfi Dewey. Tímarit eru í stafrófsröð.

Útlán og skil

  • Öll gögn sem farið er með út af safninu þarf að skrá í útlán.
  • Lánstími almennra bóka er tvær vikur.
  • Kennslubækur og handbækur er aðeins hægt að fá að láni í kennslustund eða yfir nótt eða helgi.
  • Myndbönd og mynddiskar eru til útláns í tvo daga.
  • Snældur og geislaplötur eru til útláns í viku.
  • Tímarit eru ekki til útláns.
  • Geisladiskar eru ekki til útláns.
  • Útlán eru ókeypis en lánþegi ber ábyrgð á því sem hann hefur að láni.
  • Sýnið tillitssemi og skilið á réttum tíma.
  • Bók á að skila til starfsmanna safnsins en ekki setja hana beint í hillu.
  • Þegar tekin er bók úr hillu til að lesa á safninu verður að setja hana á sama stað aftur. Annars finnst hún ekki næst þegar einvher þarf á henni að halda. Ef safngestur er í vafa um hvar hún á að vera er best að biðja um aðstoð.
  • Nemendur fá ekki afhentar einkunnir í lok annar nema þeir hafi skilað öllu sem þeir hafa fengið að láni á safninu.

Umgengni

Vinsamlegast neytið ekki matar eða drykkjar á safninu og notið farsíma utan safnsins.

Hlutverk

Skólasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur, kennara og starfsfólk skólans. Starfsemi þess styður nám, kennslu, félagslíf og þróunarstarf í skólanum. Á skólasafninu fer fram öflun og úrvinnsla þekkingar. Þar er upplýsingum safnað saman, þær skipulagðar, metnar og notaðar. Safnið er búið bókum, tímaritum, kortum, gögnum á tölvutæku formi, myndefni og hljóðritum sem tengjast kennslugreinum skólans. Einnig er boðið upp á efni sem hvetur nemendur til bókmenntalesturs og stöðugrar þekkingarleitar í leik og starfi.

Lesbásar



Á bókasafni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica